- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Baráttusigur FH-inga í Kórnum

- Auglýsing -

FH vann baráttusigur á HK í Kórnum í kvöld, 32:29, í viðureign liðanna í 16. umferð Olísdeildar karla í handknattleik og halda þar með fjórða sætinu, stigi á eftir Haukum. HK er hins vegar áfram í 9. sæti deildarinnar og verða leikmenn að bíta enn frekar í skjaldarrendur á næstunni.


HK-ingar voru síst lakari lengi vel í síðari hálfleik og voru með yfirhöndina um tíma, m.a. 23:22. FH-ingar náðu með seiglu að komast fram úr síðustu 10 mínútunar og halda tveggja til þriggja marka forskoti allt til leiksloka.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

HK – FH 29:32 (14:16).

Mörk HK: Sigurður Jefferson Guarino 10, Leó Snær Pétursson 8/5, Ágúst Guðmundsson 4, Haukur Ingi Hauksson 3, Andri Þór Helgason 2, Aron Dagur Pálsson 1, Örn Alexandersson 1.
Varin skot: Brynjar Vignir Sigurjónsson 14, 30,4%.

Mörk FH: Jakob Martin Ásgeirsson 7, Jón Bjarni Ólafsson 6, Ómar Darri Sigurgeirsson 5, Garðar Ingi Sindrason 4/3, Birkir Benediktsson 3, Einar Örn Sindrason 3, Birgir Már Birgisson 1, Brynjar Narfi Arndal 1, Kristófer Máni Jónasson 1, Leonharð Þorgeir Harðarson 1.
Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 9, 31% – Daníel Freyr Andrésson 5, 35,7%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -