- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Óðinn Þór fékk frí frá fyrsta leik eftir EM

- Auglýsing -

Óðinn Þór Ríkharðsson landsliðsmaður í handknattleik fékk frí í gær til þessað kasta mæðinni eftir langa og stranga törn þegar Kadetten Schaffhausen mætti Handball Stäfa og vann örugglega, 44:31, á heimavelli í svissnesku A-deildinni í handknattleik. 

Kadetten er efst í deildinni með 38 stig eftir 19 leiki. Handball Stäfa rekur lestina með þrjú stig. 


Óðinn Þór lék í 7 klukkustundir og 11 mínútur af 9 klukkustundum sem íslenska landsliðið lék á EM sem lauk á sunnudaginn. Aðeins Viktor Gísli Hallgrímsson var með meiri leiktíma af leikmönnum íslenska landsliðsins á mótinu.

Stöðuna í mörgum deildum evrópsks handknattleiks er að finna hér.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -