Síðari þrír leikir 16. umferðar Olísdeildar karla í handknattleik fara fram í kvöld. Umferðin hófst í gærkvöld með þremur hörkuleikjum. ÍBV lagði Selfoss, 40:28, FH hafði betur í heimsókn sinni til HK, 32:29, og KA sótti tvö stig í greipar ÍR-inga í Skógarseli, 37:31.
Tvær af fjórum viðureignum kvöldsins fara fram í Lambhagahöll Framara. Kvennalið Fram tekur á móti Selfoss klukkan 18 í fyrsta leik 16. umferðar Olísdeildar kvenna. Að þeim leik loknum takast á grannliðin Fram og Afturelding í Olísdeild karla. Flautað verður til leiks klukkan 20.15.
Toppslagur umferðarinnar verður í N1-höll Valsara þegar Haukar mæta. Valur er efstur í deildinni, aðeins tveimur stigum á undan Haukum sem eru í þriðja sæti.
Stjarnan og Þór eigast við í Hekluhöllinni í Garðabæ klukkan 18.30.
Allir leikir kvöldsins verða í útsendingu hjá Handboltapassinn.
Olísdeild kvenna, 16. umferð:
Lambhagahöllin: Fram – Selfoss, kl. 18.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
Olísdeild karla, 16. umferð:
Hekluhöllin: Stjarnan – Þór, kl. 18.30.
N1-höllin: Valur – Haukar, kl. 19.30.
Lambhagahöllin: Fram – Afturelding, kl. 20.15.



