- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Arnór Þór og Pütz halda hiklaust áfram þjálfun Bergischer HC

- Auglýsing -

Arnór Þór Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan samning um að þjálfa áfram þýska handknattleiksliðið Bergischer HC. Sömu sögu er að segja af Markus Pütz en þeir hafa starfað hlið við hlið frá vorinu 2024. Samningur þeirra félaga gildir fram á mitt árið 2028.


Arnór Þór lagði handknattleiksskóna á hilluna vorið 2023. Hann hafði þá leikið í 11 ár með Bergischer HC. Árið síðar tók Arnór við þjálfun liðsins með Pütz. Staða Bergischer HC var þá veik og fall úr 1. deild vart umflúið. Eftir aðeins eins árs veru í 2. deild endurheimti Bergischer HC sæti sitt í efstu deild á síðasta vori. Nú um stundir situr Bergischer HC í 15. sæti af 18 liðum efstu deildar í Þýskalandi. Þykja Arnór Þór og Pütz hafa unnið afar gott starf á starfstíma sínum.

Hlakkar til framhaldsins

„Við erum ánægðir með að fá tækifæri til þess að áfram að starfa saman hjá BHC, því vinnan fyrir félagið og með liðinu er ótrúlega skemmtileg,“ segir Arnór Þór í tilkynningu Bergischer HC.

„Við hlökkum til þeirra verkefna sem bíða okkar á næstu tveimur árum. Með stuðningi okkar frábæru stuðningsmanna viljum við ná því besta út liðinu. Við munum leggja allt í sölurnar til þessa,“ er enn fremur haft eftir Arnóri Þór sem lék um árabil með íslenska landsliðinu, m.a. á níu stórmótum og var markahæsti leikmaður landsliðsins á HM 2019.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -