- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Áfram lengist meiðslalisti Stjörnunnar

- Auglýsing -

Það á ekki Stjörnumönnum að ganga um þessar mundir. Á dögunum sleit Pétur Árni Hauksson krossband og nú berast þau ótíðindi á Handkastinu að Ísak Logi Einarsson sé ristarbrotinn. Ekki verður hjá því komist að Ísak Logi verði frá keppni næstu vikur meðan hann jafnar sig.


Tandri Már Konráðsson fyrirliði sleit hásin eftir Evrópuleik í Rúmeníu í upphafi leiktíðar. Sveinn Andri Sveinsson og Egill Magnússon eru einnig á meiðslalista Stjörnunnar auk þess sem Jón Ásgeir Eyjólfsson hefur verið meiddur síðan fyrir jól.

Til viðbótar réri Ólafur Brim Stefánsson á vit nýrra ævintýra á Ítalíu í upphafi árs og Ungverjinn Réa Barnabás var leystur undan samningi í aðdraganda síðustu jóla.

Hrannar Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir með langan sjúkralista og liðið í veikri stöðu í neðri hluta Olísdeildar karla.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -