- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Fimmtán marka sigur Fram sem færðist upp í 3. sæti

- Auglýsing -

Kvennalið Fram vann annan leik sinn í vikunni í kvöld er liðið lagði Selfoss afar örugglega á heimavelli, 34:19, í upphafsleik 16. umferðar Olísdeildar kvenna. Fyrr í vikunni lagði Fram lið ÍR í átta liða úrslitum bikarkeppninnar.

Með sigrinum færðist Fram upp í þriðja sæti Olísdeildar með 17 stig og stendur í sömu sporum og Haukar. Síðarnefnda liðið á leik til góða við Val á laugardaginn.

Selfoss hefur alls ekki náð sér á strik á leiktíðinni og situr í neðsta sæti með fjögur stig þegar fimm leikir eru eftir.

Framarar voru með töluverða yfirburði í leiknum í dag. Sex marka munur var á liðunum í hálfleik, 15:9.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.


Mörk Fram: Hulda Dagsdóttir 7/2, Harpa María Friðgeirsdóttir 6, Dagmar Guðrún Pálsdóttir 5, Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín 3, Sóldís Rós Ragnarsdóttir 3, Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir 2, Valgerður Arnalds 2, Sylvía Dröfn Stefánsdóttir 2, Katrín Anna Ásmundsdóttir 2, Sara Rún Gísladóttir 1/1, Ásdís Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Arna Sif Jónsdóttir 6/1, 37,5% – Ethel Gyða Bjarnasen 6, 40%.

Mörk Selfoss: Marte Syverud 4, Adela Eyrún Jóhannsdóttir 3, Hulda Hrönn Bragadóttir 3, Sylvía Bjarnadóttir 2, Arna Kristín Einarsdóttir 2, Hulda Dís Þrastardóttir 2/2, Eva Lind Tyrfingsdóttir 1, Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir 1, Inga Sól Björnsdóttir 1.
Varin skot: Selma Þóra Jóhannsdóttir 6, 27,3% – Sara Xiao Reykdal 4/1, 19% – Ágústa Tanja Jóhannsdóttir 0.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -