- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Elín Klara er í úrvalsliðinu

- Auglýsing -

Landsliðskonan Elín Klara Þorkelsdóttir er í úrvalsliði sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik sem valið var eftir leiki deildarinnar í janúar. Elín Klara gekk til liðs við IK Sävehof frá Haukum fyrir leiktíðina sem nú stendur yfir og hefur slegið í gegn hjá liðinu.


Þetta er a.m.k. í annað sinn á keppnistímabilinu sem Elín Klara er í úrvalsliði mánaðarins. Hún var einnig valin í liðið sem sett var saman í desember.

Elín Klara verður væntanlega í eldlínunni með landsliðinu í byrjun mars þegar það mætir Svartfellingum heima og að heiman í undankeppni Evrópumóts kvenna.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -