- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Elmar skrifaði undir nýjan samning í Þýskalandi

- Auglýsing -

Eyjamaðurinn Elmar Erlingsson hefur ákveðið að framlengja dvöl sína hjá þýska 2. deildarliðinu HSG Nordhorn-Lingen. Frá þessu segir félagið í dag. Nýi samningurinn er til eins árs, fram á mitt ár 2027. Elmar er langt kominn með annað keppnistímabil sitt hjá HSG Nordhorn-Lingen. Liðið er í toppbaráttu 2. deildar, situr í fimmta sæti, aðeins þremur stigum á eftir Elbflorenz sem situr í efsta sæti.


Hlé hefur verið í keppni 2. deildar síðan fyrir áramót. HSG Nordhorn-Lingen hefur keppni í deildinni á sunnudaginn með leik við Grosswallstadt.

Elmar hefur skorað 53 mörk í leikjum HSG Nordhorn-Lingen á leiktíðinni og átt 47 stoðsendingar.

„Mér líkar við lífið hjá HSG og hef ekki fundið enn sem komið er betra tækifæri fyrir mig. Ég er spenntur fyrir næsta hálfa öðru ári hjá félaginu,“ segir Elmar í tilkynningu.

Elmar hefur leikið með yngri landsliðum Íslands og var einn besti leikmaður heimsmeistaramóts 21 árs landsliða sem fram fór í Póllandi í júní á síðasta ári.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -