HK og Grótta eru áfram langefst í Grill 66-deild kvenna í handknattleik. HK lagði Aftureldingu örugglega í Kórnum í kvöld, 27:20, í 16. umferð. Grótta er tveimur stigum á eftir í öðru sæti. Víkingur er með 17 stig í þriðja sæti.
Víkingur og Grótta mættust í hörkuleik í Safamýri í kvöld. Karlotta Óskarsdóttir skoraði sigurmark Gróttu sem vann með eins marks mun, 25:24.
Leikurinn var jafn og spennandi nær allan tímann. Rétt undir lok fyrri hálfleiks komust Víkingar í þriggja marka forskot en Grótta minnkaði muninn í eitt mark, 15-14, áður en fyrri hálfleik var lokið.
Það var ekki fyrr um miðjan seinni hálfleikinn sem Grótta náði yfirhöndinni. Eftir það hafði Grótta frumkvæðið en Víkingarnir voru ekki langt undan. Auður Brynja Sölvadóttir jafnaði metin fyrir Víking, 24:24, þegar liðlega hálf mínúta var eftir af leiktímanum. Karlotta tryggði Gróttu sigurinn eins og áður sagði.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.
HK – Afturelding 27:20 (16:13)
Mörk HK: Inga Fanney Hauksdóttir 6, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 6, Leandra Náttsól Salvamoser 5, Auður Katrín Jónasdóttir 2, Amelía Laufey G. Miljevic 2, Katrín Hekla Magnúsdóttir 2, Selma Sól Ómarsdóttir 2, Hekla Sóley Halldórsdóttir 1, Hekla Sóley Halldórsdóttir 1.
Varin skot: Danijela Sara B. Björnsdóttir 12, Tanja Glóey Þrastardóttir 1.
Mörk Aftureldingar: Katrín Helga Davíðsdóttir 10, Karen Hrund Logadóttir 3, Katrín Erla Kjartansdóttir 3, Brynja Rögn Ragnarsdóttir 2, Arna Sól Orradóttir 1, Halldóra Ástrós Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Áslaug Ýr Bragadóttir 11.
Víkingur – Grótta 24:25 (15:14)
Mörk Víkings: Auður Brynja Sölvadóttir 6, Hildur Guðjónsdóttir 4, Valgerður Elín Snorradóttir 4, Hafdís Shizuka Iura 3, Andrea Ósk Þorkelsdóttir 2, Mattý Rós Birgisdóttir 2, Helga Lúðvíka Hallgrímsdóttir 1, Emilía Ína Burknadóttir 1, Ivana Jorna Dina Meincke 1.
Varin skot: Klaudia Katarzyna Kondras 11.
Mörk Gróttu: Ída Margrét Stefánsdóttir 9, Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir 5, Elísabet Ása Einarsdóttir 2, Katrín S. Scheving Thorsteinsson 2, Þóra María Sigurjónsdóttir 2, Edda Steingrímsdóttir 2, Guðrún Þorláksdóttir 2, Katrín Helga Sigurbergsdóttir 1.
Varin skot: Andrea Gunnlaugsdóttir 7, Anna Karólína Ingadóttir 1.



