Magnús Óli Magnússon og Dagur Árni Heimisson leika ekki með Val næstu fjórar vikur vegna meiðsla í hnjám. Þriðji leikmaðurinn á meiðslalistanum, Agnar Smári Jónsson, verður hugsanlega frá keppni í allt að sex vikur til viðbótar vegna kviðslits.
Dagur Árni tók ekki þátt í tapleiknum við Hauka á fimmtudagskvöld sökum hnémeiðslanna sem hafa hrjáð hann upp á síðkastið. Magnús Óli Magnússon meiddist í fyrri hálfleik í viðureign Vals og Hauka í N1-höllinni á fimmtudagskvöld.

Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Vals staðfesti við handbolta.is í morgun að leikmennirnir þrír verði ekki inni í myndinni hjá honum á næstunni.
Þétt verður leikið á næstunni í Olísdeildinni, allt fram að úrslitaviku bikarkeppninnar í lok febrúar þegar hlé verður hjá þeim liðum sem þar taka ekki þátt.
Mætast á morgun
Á morgun sækir Valur Aftureldingu heim í Myntkaup-höllina að Varmá í 17. umferð Olísdeildar. Flautað verður til leiks klukkan 15.30.
Ágúst Ingi Óskarsson og Stefán Magni Hjartarson eru á sjúkralista Aftureldingar. Stefán Árnason þjálfari Aftureldingar sagði við handbolta.is í morgun að Ágúst Ingi og Stefán Magni verði frá keppni í ótiltekinn tíma til viðbótar.




