„Það er rétt að stíga varlega til jarðar og vera ekki með of miklar yfirlýsingar í fjölmiðlum,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik í viðtali við handbolta.is spurður hvort hann vilji halda áfram en samningur hans við HSÍ rennur út í vor. Eins og kom fram í fjölmiðlum hefur formaður HSÍ áhuga á að Snorri Steinn haldi áfram enda sé hann á réttri leið með landsliðið. Snorri Steinn segir að hann muni funda með stjórnendum HSÍ í næstu viku þar sem m.a. verður vafalaust rætt um nýjan samning.
Snorri Steinn tók við sem landsliðsþjálfari á miðju ári 2023 og hefur farið með landsliðið í gegnum þrjú stórmót.
Ánægður með þróunina
„Ég er að mörgu leyti ánægður með síðustu þrjú ár með landsliðið þótt svo að ég sem keppnismaður hefði viljað ná betri árangri þegar litið er til sæta á stórmótum. Við ætluðum okkur metalíu á þessum tíma. En ef ég horfi á þá þróun sem átt hefur séð stað á þremur árum er ég mjög ánægður og finnst við hafa tekið góð skref í rétta átt,“ segir Snorri Steinn og bætir við:
Get náð meira út úr liðinu
„Mér finnst ég alls ekki vera búinn með verkefni mitt með landsliðinu, tel mig geta náð meira út úr þessu liði. En eins og alltaf þá þarf maður að finna að maður sé sjálfur tilbúinn í halda áfram, hvort HSÍ sé tilbúið en ekki síst hópurinn sé klár að taka næstu skref með mér, sé ánægður og sigli í sömu átt og ég. Til þessa hef ég ekki skynjað annað,” segir Snorri Steinn.
Krefjandi og gaman
„Ég er opinn fyrir að setjast niður og skoða framhaldið með HSÍ. Það er heiður en um leið erfitt á köflum að vera þjálfari íslenska landsliðsins. Það er einnig heiður að þjálfa strákana sem eru í landsliðinu. Allir eru þeir toppdrengir og frábærir í handbolta. Það er gaman og krefjandi að þjálfa góða leikmenn. Þannig á það að vera. Þeir halda manni á tánum og gera mann betri,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla í viðtali við handbolta.is.
Vonandi var þetta bara fyrsti hjallinn sem landsliðið kemst yfir



