- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

FH skaust upp í fjórða sæti

- Auglýsing -

Árni Stefán Guðjónsson þjálfari FH og leikmenn hans gátu farið með bros á vör heim úr Kaplakrika út í svalan en bjartan vetrardag eftir öruggan sigur á Fjölni, 27:20, í 16. umferð Grill 66-deildar kvenna í handknattleik. Með sigrinum færðist FH upp í fjórða sæti deildarinnar með 12 stig og hefur m.a. Fjölni tveimur stigum á eftir sér.

FH var með yfirhöndina í leiknum frá upphafi til enda. Í hálfleik var þriggja marka munur, 12:9. Munurinn jókst í síðari hálfleik, ekki síst vegna öflugrar frammistöðu Szonja Szöke markvarðar sem reynst hefur FH-liðinu happafengur.


Mörk FH: Thelma Dögg Einarsdóttir 6, Gyða Kristín Ásgeirsdóttir 4, Katrín Ósk Ástþórsdóttir 4, Telma Medos 4, Ísabella Jórunn Mueller 3, Elísa Björt Ágústsdóttir 2, Eva Guðrúnardóttir Long 2, Guðrún Ólafía Marinósdóttir 2.
Varin skot: Szonja Szöke 15.

Mörk Fjölnis: Berglind Benediktsdóttir 6, Sara Kristín Pedersen 4, Stefanía Ósk Engilbertsdóttir 4, Hildur Sóley Káradóttir 2, Matthildur Lóa Baldursdóttir 2, Guðrún Maryam Rayadh 1, Signý Harðardóttir 1.
Varin skot: Signý Pála Pálsdóttir 10.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -