Topplið sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla, IFK Kristianstad, vann grannliðið HF Karlskrona, 33:29, í viðureign liðanna í Karlskrona í dag. Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði tvö mörk fyrir IFK og gaf sex stoðsendingar. Honum var einu sinni vikið af leikvelli.
Eyjamaðurinn Arnór Viðarsson skoraði fjögur mörk og gaf tvær stoðsendingar fyrir Karlskrona-liðið sem er áfram í níunda sæti deildarinnar, stigi fyrir ofan Amo HK.
Skellur í Stokkhólmi
Birgir Steinn Jónsson og liðsfélagar í IK Sävehof töpuðu með sjö marka mun í heimsókn til Hammarby, 33:26. Hammarby færðist upp í annað sæti deildarinnar, alltént um stund.
Birgir Steinn skoraði tvö mörk og gaf tvær stoðsendingar eins og virtist vera óskrifuð regla meðal Íslendinganna þriggja sem áttu leiki í dag.
IK Sävehof er í fjórða sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 23 stig eftir 20 leiki. Liðið er níu stigum á eftir IFK Kristianstad sem trónir á toppnum.
Staðan:


