- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sara Dögg átti stórleik – ÍR endurheimti þriðja sætið

- Auglýsing -

Sara Dögg Hjaltadóttir átti stórleik fyrir ÍR í kvöld þegar liðið lagði Stjörnuna, 31:27, í 16. umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik í Hekluhöllinni í Garðabæ. Sara Dögg skoraði 13 mörk og dró félaga sína áfram í átt að sigrinum í síðari hálfleik. Stjarnan var þremur mörkum yfir í hálfleik, 15:12, en liðið lenti fljótlega undir í síðari hálfleik.


Stigin tvö færðu ÍR-liðið upp í þriðja sæti Olísdeildar með 18 stig eftir 16 leiki. Liðið er stigi á undan Fram og Haukum.

Síðasti leikur 16. umferðar verður á morgun þegar KA/Þór tekur á móti ÍBV klukkan 14.30 í KA-heimilinu.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

Mörk Stjörnunnar: Sara Katrín Gunnarsdóttir 7/2, Inga Maria Roysdottir 6, Eva Björk Davíðsdóttir 6/2, Natasja Hammer 5, Þóra Hrafnkelsdóttir 2, Brynja Katrín Benediktsdóttir 1.
Varin skot: Margrét Einarsdóttir 10/1, 27,8% – Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 0.

Mörk ÍR: Sara Dögg Hjaltadóttir 13/6, Katrín Tinna Jensdóttir 6, Sylvía Sigríður Jónsdóttir 6, Ásthildur Bertha Bjarkadóttir 2, Matthildur Lilja Jónsdóttir 2, Vaka Líf Kristinsdóttir 2.
Varin skot: Ingunn María Brynjarsdóttir 6/1, 31,6% – Sif Hallgrímsdóttir 4/1, 22,2%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -