Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fjögur mörk og Benedikt Gunnar Óskarsson tvö mörk þegar Kolstad vann Kristiansand TH, 38:28, á heimavelli í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Benedikt Gunnar átti níu stoðsendingar í leiknum en Sigvaldi Björn eina.
Sigurjón Guðmundsson varði fimm skot af 11 þann tíma sem hann var í marki Kolstad. Sænski markvörðurinn Andreas Palicka var fjarri góðu gamni annan leikinn í röð. Orðrómur er uppi um að hann sé á leið frá Kolstad á næstu dögum eins og handbolti.is sagði frá á dögunum.
Kolstad er eftir sem áður í öðru sæti norsku úrvalsdeildarinnar. Liðið hefur nú 29 stig að loknum 17 leikjum. Elverum er efst með sama stigafjölda en á leik til góða á Kolstad. Elverum sækir Halden heim í dag.
Tap hjá Dönu Björgu
Verulega hefur dregið úr vonum Volda um að blanda sér alvarlega í slaginn um sæti í úrvalsdeild kvenna á næstu leiktíð. Volda tapaði í gær fyrir efsta liði deildarinnar, Flint Tønsberg, 31:30, á útivelli og situr í 5. sæti deildarinnar.
Dana Björg Guðmundsdóttir landsliðskona skoraði þrjú mörk fyrir Volda í gær.
Eins og kom fram á handbolti.is á dögunum kveður Dana Björg lið Volda í sumar og gengur til liðs við úrvalsdeildarliðið Larvik.



