Viktor Gísli Hallgrímsson varð í dag spænskur bikarmeistari í handknattleik með liði sínu Barcelona. Landsliðsmarkvörðurinn fór á kostum í leiknum, varði 17 skot, 41%, í úrslitaleiknum sem fram fór á Rita Hernández Island Pavilion in Telde á Gran Canaria, sem er ein Kanaríeyja.
Katalóníurisinn lagði Atlético Valladolid með átta marka mun, 32:24, í úrslitaleiknum í dag en hafði lagt Bidasoa, 37:31, í undanúrslitaleiknum í gær.
Barcelona var með fjögurra marka forskot í hálfleik, 16:12.
Portúgalski línumaðurinn Luis Frade var markahæstur í dag líkt og í gær með átta mörk.
Fjórðu verðlaunin
Viktor Gísli hefur þegar unnið til fernra verðlauna á sínu fyrsta keppnistímabili með Barcelona; meistarakeppnina á Spáni, Katalóníubikarinn, heimsmeistaratitil félagsliða og bikarkeppnina.
El brindis dels campions 🍻 pic.twitter.com/2CUL9ZFQAm
— Barça Handbol (@FCBhandbol) February 8, 2026


