Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handknattleik, segir nauðsynlegt að kom á fót nýju B-landsliði en slíkt lið hefur ekki verið fyrir hendi um árabil vegna fjárskorts Handknattleikssambandsins. Að mati Snorra þarf að vera virkt B-landslið sem nýti „landsliðsgluggana“ til þess að gefa fleiri leikmönnum tækifæri til þess að þróast og eflast að reynslu og þannig stækka landsliðshópinn. Þeir fáu dagar sem A-landsliðið hefur yfir árið bjóði vart upp á vettvang fyrir lítt reyndari menn til þess að láta ljós sitt skína enda séu á fjórða tug handknattleiksmanna sem hafa atvinnu af handknattleik víðs vegar um Evrópu.
„Ég held það sé algjört lykilatriði fyrir íslenskan handbolta að koma B-landsliði af stað á ný eftir langt hlé og nýta annan hvorn landsliðsgluggann sem fram undan er fyrir B-landslið,“ segir Snorri Steinn í viðtali við handbolta.is.
Verkefni þurfa að vera til
„Fleiri en 30 strákar eru að leika í atvinnumennsku víða um Evrópu og það segir sig sjálft að í undirbúningi stórmóta er útilokað að gefa þeim öllum tækifæri. Til þess að stækka A-landsliðshópinn þá þurfa að vera til verkefni fyrir þá stráka sem banka á dyrnar. Þeir þurfa landsleiki þannig að við getum betur séð til þeirra. Það er eðlilegur munur á milli þeirra leikmanna sem eru að spila með bestu félagsliðum heims og í öflugustu deildum Evrópu og þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref. Við verðum að stíga skrefið og koma B-landsliði af stað,“ segir Snorri Steinn en sem kunnugt er HSÍ skorinn mjög þröngur fjárhagslegu stakkur.
Að horfa lengra fram í tímann
„Menn innan HSÍ eru sammála mér en því miður þá vantar peninga. En ef við horfum lengra fram í tímann en sem nemur einu eða tveimur stórmótum þá er alveg ljóst að það að koma B-landsliði af stað er hreinlega lífsnauðsynlegt fyrir íslenskan handbolta svo hægt sé að stækka hópinn til framtíðar með markvissari hætti,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla.


