Mægður voru andstæðingar á handknattleiksvellinum í dag þegar KA/Þór og ÍBV áttust við í KA-heimilinu í Olísdeild kvenna. Selma Sigurðardóttir var ein þriggja markavarða KA/Þórs en dóttir hennar Ólöf Maren Bjarnadóttir varði mark ÍBV. Báðar komu þær við sögu í leiknum.
Selma hefur verið á skýrslu hjá KA/Þór í nokkrum leikjum upp á síðkastið í fjarveru Mateu Lonac eftir því sem Akureyri.net segir frá í kvöld.
Ólöf Marín lék um skeið með KA/Þór en hefur undanfarin ár staðið vaktina í marki ÍBV. Hún hafði betur í leiknum sem ÍBV vann, 32:22.
ÍBV átti ekki í vandræðum í KA-heimilinu
Fátítt er að mæðgur séu andstæðingar á handboltavellinum hér á landi en fyrir hefur komið að mæðgur séu samherjar. Má þar m.a. nefna að Kristín Guðmundsdóttir og Embla Steindórsdóttir léku saman með HK fyrir nokkrum árum og enn lengra aftur er þess að minnast að Gunnur Sveinsdóttir og Þórey Anna Ásgeirsdóttir voru samherjar hjá FH fyrir meira en áratug. Dæmin eru vafalaust fleiri.



