- Auglýsing -
Markvörðurinn Hannes Pétur Hauksson hefur framlengt leikmannasamninginn sinn við handknattleiksdeild Gróttu til ársins 2028.
Hannes er 19 ára gamall og kemur úr sterkum 2006 árgang sem varð til að mynda bikarmeistari í fyrra og lenti í 2.sæti Íslandsmótsins eftir háspennu í úrslitaleiknum. Hann hefur leikið 49 leiki fyrir meistaraflokk Gróttu og þar af 18 leiki í vetur. Hann hefur varið 191 skot í vetur sem gerir um 12 skot að meðaltali í hverjum leik.
Hannes hefur verið viðloðandi yngri landslið Íslands undanfarin ár og lék sína fyrstu landsleiki með U20 ára landsliðinu gegn A-landsliði Grænlands á haustmánuðum.
- Auglýsing -



