Guðjón Valur Sigurðsson þjálfari þýska liðsins Gummersbach hefur heldur betur fengið liðsauka fyrir næsta tímabil. Í dag var staðfest að spænski landsliðsmaðurinn Alex Dujshebaev hafi samið við félagið frá og með sumrinu. Hann hefur skrifað undir samning sem gildir til næstu þriggja ára.
Alex Dujshebaev er 33 ára gamall örvhentur handknattleiksmaður og með þeim allra öflugustu í sinni stöðu í Evrópu. Þar af leiðandi er um hvalreka að ræða fyrir Gummersbach-liðið og mikla viðurkenningu fyrir Guðjón Val sem þjálfara.
Alex er sonur hins þekkta handknattleiksmanns og síðar þjálfara, Talant Dujshebaev. Átján ára gamall steig Alex sín fyrstu skref á handknattleiksvellinum með Ciudad Real á Spáni. Síðar færði hann sig yfir til CB Ciudad de Logroño og BM Aragón. Alex lék með RK Vardar Skope frá 2013 til 2017 en hefur síðan leikið undir stjórn föður síns hjá Indurstria Kielce í Póllandi.
Alex hefur verið kjölfesta í spænska landsliðinu í rúman áratug og leikið 172 landsleiki og skorað nærri 500 mörk. Hann var valinn úrvalslið HM 2023.
Faðir Alex, Talant, lék í Þýskalandi frá 1997 til 2001 með grannliðunum TuS Nettelstedt-Lübbecke og GWD Minden.



