- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ísland í efsta flokki á HM – leikstaður liggur ekki fyrir

- Auglýsing -

Ísland verður í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir lokakeppni heimsmeistaramótsins sem fram fer í Þýskalandi frá 13. til 31. janúar á næsta ári. Dregið verður í riðla miðvikudaginn 10. júní í Hofbräuhaus í miðborg München. Kosturinn við að vera í efsta styrkleikaflokki er sá að yfirleitt eru lakari lið í flokkunum fyrir neðan. Ísland var í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið var í riðla fyrir HM 2025. Fjórða sætið á EM 2026 fleytir Íslandi hins vegar upp í efsta flokk að þessu sinni.

Leikið í fjórum borgum

Ekki liggur enn þá fyrir hvar íslenska landsliðið mun leika í riðlakeppni HM. Einu liðunum sem hefur þegar verið raðið niður á keppnisstaði eru Þýskaland og Danmörk. Þjóðverjar byrja í München og heimsmeistarar Danmerkur í Kiel.

Viktor Gísli Hallgrímsson verður vafalaust í marki íslenska landsliðsins á HM 2027. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Leikið verður í fjórum borgum í riðlakeppninni, tveir riðlar í hverri borg: München, Stuttgart, Magdeburg og Kiel.

Milliriðlar fara fram í Hannover og Köln. Forstebikarinn í Magdeburg. Allir leikir frá og með átta liða úrslitum verða leiknir í Köln.

Argentína í efsta flokki

Alþjóða handknattleikssambandið tilkynnti í dag hvernig raðið hefur verið niður í styrkleikaflokkana, svo langt sem það getur náð þar sem aðeins 19 þjóðir eru öruggar um sæti en 32 landslið taka þátt í mótinu. Athygli vekur að Argentína er í fyrsta styrkleikaflokki en ástæða þess er pólitísks eðlis.

Styrkleikaflokkur 1: Danmörk, Þýskaland, Króatía, Ísland, Portúgal, Svíþjóð, Egyptaland, Argentína.
Styrkleikaflokkur 2: Frakkland eða Tékkland, Finnland/Svartfjallaland/Slóvenía, Noregur/Tyrkland/Rúmenía, Serbía, Litáen/Ungverjaland, Spánn/Georgía/Ísrael, Sviss/Ítalía, Bosnía/Kósovó/Færeyjar, Úkraína/Slóvakía/Norður-Makedónía.
Styrkleikaflokkur 3: Holland/Grikkland/Belgía, Austurríki/Pólland/Litáen, Brasilía, Barein, Túnis, Grænhöfðaeyjar, Chile, Norður-Ameríka og Karíbahafseyjar.
Styrkleikaflokkur 4: Katar, Kúveit, Japan, Alsír, Angóla, Úrúgvæ, Wild Card 1, Wild Card 2.

Framkvæmdastjórn Alþjóða handknattleikssambandsins deilir út tveimur boðskortum (Wild Card) áður en dregið verður í riðla 10. júní.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -