- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

ÍR-ingar eru ekki af baki dottnir

- Auglýsing -

ÍR-ingar eru ekki af baki dottnir í baráttu fyrir áframhaldandi tilverurétti sínum í Olísdeild karla í handknattleik. Það sýndu þeir svo sannarlega í kvöld er þeir lögðu HK, 36:31, í Skógarseli. ÍR-ingar eru ennþá neðstir í deildinni með sjö stig en eru nú tveimur stigum á eftir Þór og þremur stigum frá HK og Stjörnunni.

Þetta var sjöunda tap HK í síðustu átta leikjum í Olísdeildinni.


Fimm marka sigur ÍR-inga á HK getur orðið dýrmætur þegar upp verður staðið vegna þess að HK vann fyrri viðureign liðanna með tveggja marka mun.

Næsti leikur ÍR verður við Fram á föstudagskvöld í Skógarseli. Sama kvöld tekur HK á móti Þór í Kórnum.

Viðureign ÍR og HK var lengi vel jöfn í fyrri hálfleik. Það skipti hins vegar sköpum þegar Alexander Ásgrímsson kom í mark ÍR síðla í hálfleiknum. Hann varði fimm skot með skömmu millibili sem félagar hans nýttu til þess að leiðir liðsins skildu fyrir hálfleik. ÍR hafði fjögurra marka forskot í hálfleik, 19:15.

Elvar Otri Hjálmarsson leikmaður ÍR. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Allan síðari hálfleik voru ÍR-ingar með yfirhöndina. Alexander hélt uppteknum hætti í markinu. Elvar Otri Hjálmarsson kom sterkur inn í sóknarleikinn ásamt fleirum eftir að Baldur Fritz Bjarnason hafði verið burðarás í fyrri hálfleik.

Varnarleikur HK var slakur og oft voru mönnum mislagðar hendur í sóknarleiknum, ekki síst þegar dró nærri leikslokum og örlítil von vaknaði um að geta minnkað muninn og hleypt spennu í viðureignina.


Mörk ÍR: Baldur Fritz Bjarnason 10, Róbert Snær Örvarsson 6, Jökull Blöndal Björnsson 5, Elvar Otri Hjálmarsson 5, Sveinn Brynjar Agnarsson 4, Eyþór Ari Waage 3, Bernard Kristján Owusu Darkoh 2, Nathan Doku Helgi Asare 1.
Varin skot: Alexander Ásgrímsson 12, Ólafur Rafn Gíslason 3.

Mörk HK: Andri Þór Helgason 7, Haukur Ingi Hauksson 6, Ágúst Guðmundsson 4, Orfeus Andreou 4, Örn Alexandersson 3, Aron Dagur Pálsson 2, Leó Snær Pétursson 2, Sigurður Jefferson Guarino 2, Tómas Sigurðarson 1.
Varin skot: Róbert Örn Karlsson 5, Brynjar Vignir Sigurjónsson 3.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -