- Auglýsing -
Mia Kristin Syverud, markahæsti leikmaður Selfoss, handleggsbrotnaði í viðureign Selfoss og Hauka í Olísdeild kvenna 15. janúar. Óvíst er hvort hún leikur meira með liðinu á leiktíðinni, eftir því sem Handkastið hefur eftir Eyþóri Lárussyni þjálfara Selfossliðsins.
Meiðsli Syverud koma sér einstaklega illa fyrir Selfossliðið sem er neðst í Olísdeild kvenna með fjögur stig þegar fimm umferðir eru eftir óleiknar. Selfoss tekur á móti KA/Þór í 17. umferð Olísdeildarinnar í Sethöllinni á laugardaginn.
Syverud hefur skoraði 89 mörk í 15 leikjum á keppnistímabilinu.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
- Auglýsing -


