- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Hljóðupptaka: Heimkoma „handknattleiksflokksins“ frá HM 1961

- Auglýsing -

Skemmtilegt innslag frá heimkomu karlalandsliðsins í handknattleik, eða handknattleiksflokksins, frá heimsmeistaramótinu 1961 er að finna í Mannlega þættinum sem sendur var út á Rás 1 í gærmorgun, mánudag. Í innslaginu, sem er rúmlega átta mínútna langt, er m.a. viðtal Sigurðar Sigurðssonar, íþróttafréttamanns RÚV, við Hallstein Hinriksson landsliðsþjálfara í afgreiðslu Loftleiða á Reykjavíkurflugvelli þegar landsliðið kom heim frá Vestur-Þýskalandi eftir frægðarför en liðið hafnaði í 6. sæti.

Viðtal, lýsing og ræða

Auk fróðlegs og skemmtilegs viðtals við Hallstein, afa Loga Geirssonar, er brot úr lýsingu frá leik Íslands og Frakklands á mótinu, auk þess sem bútur er úr ræðu Gylfa Þ. Gíslasonar menntamálaráðherra úr samsæti sem stjórn Handknattleikssambands Íslands hélt fyrir leikmenn í Tjarnarkaffi daginn eftir að komið var heim.

Hlekkur á þáttinn: https://www.ruv.is/utvarp/spila/mannlegi-thatturinn/23616/biq4qb

Innslagið hefst eftir 18,33 mínútur en viðtal Sigurðar við Hallstein eftir 22,12 mín. Síðan tekur við lýsing frá upphafsmínútum leiks Íslands og Frakklands áður en áfram er haldið með viðtal Sigurðar við Hallstein. Í lokin er ávarp menntamálaráðherra úr hófinu í Tjarnarkaffi.


Eftir því sem handbolti.is kemst næst var það Ásbjörn Sigurjónsson formaður HSÍ sem lýsti leiknum en hafi lesendur aðrar upplýsingar er þær vel þegnar á netfangið [email protected].

Þess má geta að leikurinn við Frakka, sem stutt lýsing er frá, lauk með sjö marka sigri Íslands, 20:13, og fór fram í Homberg 9. mars 1961.

Hér er síðan að lokum grein þar sem þátttaka Íslands 1961 er rifjuð upp:

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -