- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Liðsmenn Guðjóns Vals byrjuðu af krafti eftir EM

- Auglýsing -

Liðsmenn Guðjóns Vals Sigurðssonar í VfL Gummersbach hófu keppni í þýsku 1. deildinni í kvöld af miklum krafti. Þeir lögðu Flensburg með sjö marka mun á heimavelli, 33:26. Flensborgarliðið var og er í öðru sæti deildarinnar en VfL Gummersbach í sjötta sæti.

Elliði Snær Viðarsson var í essinu sínu í leiknum. Hann skoraði átta mörk og vann boltann tvisvar sinnum í vörninni. Teitur Örn Einarsson skoraði eitt mark í sigrinum góða. Gummersbach var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 16:12.


Daninn Emil Jakobsen var markahæstur hjá Flensburg með sex mörk.

Nauðsynlegur sigur hjá Blæ

Blær Hinriksson og liðsfélagar í SC DHfK Leipzig unnu nauðsynlegan sigur í fallbaráttunni í kvöld er þeir sóttu heim HSV Hamburg, 35:33. Blær skoraði tvö mörk í leiknum. Dean Bombač skoraði 11 mörk og gaf fjórar stoðsendingar. Ljóst er að nýjasta viðbót Leipzig-liðsins er tilbúin að láta til sín taka.

Þrátt fyrir sigurinn rekur SC DHfK Leipzig enn þá lestina í deildinni með sjö stig eftir 20 leiki. Liðið hefur sama fjölda stiga og HSG Wetzlar sem á leik til góða á morgun við Füchse Berlin.

Einar Þorsteinn Ólafsson lét eingöngu til sín taka í varnarleik HSV Hamburg. Honum var einu sinni vikið af leikvelli.

Fyrsti sigurinn hjá Pastor

Hannover-Burgdorf vann sinn fyrsta leik undir stjórn Spánverjans Juan Carlos Pastor í kvöld. Liðið lagði HC Erlangen, 30:29, á útivelli. Heiðmar Felixson er áfram aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf eftir þjálfaraskiptin skömmu fyrir EM.

Viggó Kristjánsson skoraði fimm mörk, þar af þrjú úr vítaköstum. Einnig gaf hann fimm stoðsendingar.

Andri Már Rúnarsson skoraði eitt mark og gaf eina stoðsendingu en hann leikur með HC Erlangen eins og Viggó.

Ýmir Örn Gíslason og liðsfélagar í Göppingen gerðu jafntefli á heimavelli við GWD Minden, 28:28. Ýmir Örn skoraði eitt mark.


Staðan í þýsku 1. deildinni:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -