- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Svavar og Sigurður dæma í Meistaradeild Evrópu – tvö íslensk pör í keppninni

- Auglýsing -

Handknattleiksdómararnir Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson dæma saman í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu í handknattleik karla í næstu viku. Þeir hafa verið settir á viðureign Aalborg Håndbold og Kolstad Håndball í 11. umferð A-riðils Meistaradeildar í Álaborg miðvikudaginn eftir viku.

Mikil viðurkenning

Að fá leiki í Meistaradeild Evrópu er mikil viðurkenning fyrir Svavar Ólaf og Sigurð Hjört. Þeir hafa dæmt töluvert marga leiki í Evrópudeild karla undanfarin ár auk landsleikja, bæði í undankeppni stórmóta og vináttulandsleiki. Síðast dæmdu þeir félagar síðari vináttuleik Þýskalands og Króatíu í Hannover nokkrum dögum áður en EM karla hófst. Hafa Svavar og Sigurður hlotið góða dóma fyrir frammistöðu sem á sinn þátt í þeir eru uppfærðir á dómaralista EHF. Um leið er þetta viðurkenning fyrir fámennan en dugmikinn hóp íslenskra dómara sem situr stundum undir óvæginni gagnrýni. Eins og oft áður þá kemur upphefðin að utan.

Tvö íslensk pör

Þar með eru tvö íslensk dómarapör í Meistaradeild karla í handknattleik en Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elísson hafa dæmt átta til tíu leiki á keppnistímabili í Meistaradeildinni undanfarin ár við góðan orðstír, svo góðan að þeir hafa valist oftar en einu sinni í úrslitahelgi keppninnar, síðast vorið 2025. Anton og Jónas eiga ekki leik í Meistaradeildinni í næstu viku enda ný komnir heim eftir þriggja vikna úthald á Evrópumóti karla.

Svavar hefur dæmt áður

Svavar Ólafur hefur áður dæmt í Meistaradeild Evrópu. Fyrir áratug og rúmlega það dæmdi hann 10 leiki í keppninni ásamt þáverandi félaga sínum í dómgæslu, Arnari Sigurjónssyni.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -