Þótt kórónuveirufaraldurinn, Covid-19, og fregnir af honum séu hættar að tröllríða fréttum þá glíma margir við afleiðingar faraldurs, jafnt fólk sem fyrirtæki. Eitt þeirra er þýska handknattleiksliðið Wölfe Würzburg sem um þessar mundir leikur í 3. deild en það hefur annað veifið átt lið í 2. deild.
Neyðarkall
Félagið hefur sent frá sér neyðarkall vegna gats í reikningum þess upp á um 150.000 evrur, jafnvirði 21 milljónar kr., í fjárhagsáætlun félagsins félagsins sem gerir ráð fyrir um 600 þúsund evra veltu á leiktíðinni sem stendur yfir, jafnvirði um 87 milljóna kr.
Langvarandi deilur
Eftir því sem fram kemur í Sport Bild rekja stjórnendur Wölfe Würzburg fjárhagsvandann og ástandið til langvarandi deilna við yfirvöld í Bæjaralandi um greiðslu styrkja sem greiddir átti út á tímum kórónufaraldursins. Félagið hefur fengið samþykkta ríkisstyrki upp á 84.000 evrur. Ekki hefur verið greiddur nema rúmlega helmingur upphæðarinnar. Annað er sagt í vinnslu. Til að bæta gráu ofan á svart hafa yfirvöld krafist endurgreiðslu á styrkjum frá nóvember og desember 2020.
Vita ekki sitt rjúkandi ráð
Stjórnendur Wölfe Würzburg vita ekki sitt rjúkandi ráð í þessum efnum. Leitað var aðstoðar á pólitískum vettvangi, meðal annars hjá áfrýjunarnefnd þingsins í Bæjaralandi, sem í júní 2025 mat mál félagsins réttmætt og hvatti efnahagsráðuneytið til að afgreiða málið félaginu í vil.
Engu að síður bólar ekkert að peningunum né lausn á kröfunni um endurgreiðsluna frá nóvember og desember 2020.
Fá engin svör
„Enn þann dag í dag höfum við ekki fengið neinar áþreifanlegar upplýsingar um núverandi stöðu málsins og fyrirspurnum okkar hefur verið ósvarað,“ segir í yfirlýsingu frá félaginu.
„Núverandi ástand leiðir til ítrekaðs lausafjárvanda, skipulagsleysis þegar litið er til framtíðar auk tilheyrandi kostnaðar vegna lögfræði- og skattaráðgjafar,“ segir í yfirlýsingu félagsins.


