Elvar Ásgeirsson tryggði Ribe-Esbjerg annað stigið gegn GOG í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Mosfellingurinn jafnaði metin, 30:30, þegar rétt innan við mínúta var til leiksloka. Þrátt fyrir ákafa sókn GOG þá lánaðist liðinu ekki að skora sigurmarkið á heimavelli sínum.
Elvar skoraði fjögur mörk og gaf fjórar stoðsendingar fyrir Ribe-Esbjerg í leikjum auk þess að láta til sín taka í vörninni eins og hans var von og vísa.
Hjalte Lykke og Frederik Bjerre létu mest til sín taka hjá GOG. Þeir skoruðu sjö mörk hvor. Óli Mittún skoraði fimm sinnum og gaf tvær stoðsendingar.
Mathias Jørgensen skoraði sex mörk fyrir Ribe-Esbjerg. Lauritz Legér skoraði fimm mörk. Þar á eftir kom Elvar.
Staðan í dönsku úrvalsdeildinni:



