Aron Pálmarsson hefur verið ráðinn nýr aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá FH frá og með deginum í dag. Hann mun sinna því starfi út yfirstandandi tímabil, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá handknattleiksdeildar FH í kvöld.
Þetta er fyrsta verkefni Arons á sviði þjálfunar en hann lagði skóna á hilluna í sumar eftir frábæran feril. Síðar hefur hann unnið sem ráðgjafi handknattleiksdeildar FH.
Einar Andri Einarsson, sem verið hefur aðstoðarþjálfari, verður áfram vera í þjálfarateymi liðsins en mun í auknu mæli taka að sér önnur verkefni hjá handknattleiksdeildinni.
Sigursteinn Arndal verður áfram aðalþjálfari FH-liðsins sem situr í fjórða sæti Olísdeildar með 23 stig eftir 17 leiki, þremur stigum á eftir Val.



