SC Magdeburg heldur sigurgöngu sinni áfram í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld þegar liðið hóf leik á ný eftir EM-hlé. Magdeburg, með Gísla Þorgeir Kristjánsson og Ómar Inga Magnússon í broddi fylkingar, lagði spútniklið Lemgo, 36:32, á heimavelli. Magdeburg lagði grunn að sigrinum í fyrri hálfleik en að honum loknum var forskot liðsins sex mörk, 19:13.
Gísli Þorgeir var markahæstur hjá Magdeburg með sjö mörk auk þess að gefa flestar stoðsendingar, fjórar. Ómar Ingi skoraði sex mörk, eitt þeirra úr vítakasti. Matthias Musche og Felix Claar skoruðu einnig sex mörk hvor.
Elvar Örn Jónsson er frá keppni vegna meiðsla sem hann varð fyrir í viðureign Íslands og Ungverjalands á Evrópumótinu 20. janúar.
Niels Gerardus Versteijnen var markahæstur hjá Lemgo með níu mörk.
Reynir Þór markahæstur
Reynir Þór Stefánsson skoraði fimm mörk fyrir Melsungen í þriggja marka sigri í heimsókn til Bergischer HC sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar við annan mann. Reynir Þór var markahæstur leikmanna Melsungen í fyrsta sinn á leiktíðinni. Arnar Freyr Arnarsson skoraði ekki að þessu sinni fyrir Melsungen sem situr í 7. sæti.
Töpuðu endasprettinum
Rhein-Neckar Löwen tapaði naumlega fyrir THW Kiel í hörkuleik á heimavelli, 28:27. Löwen var lengi vel með yfirhöndina í leiknum en vopnin snerust í höndum leikmanna liðsins síðasta stundarfjórðunginn.
Haukur Þrastarson skoraði fjögur mörk og átti fjórar stoðsendingar í liði Rhein-Neckar Löwen sem er í áttunda sæti.
Á brattann var að sækja
Á brattann var að sækja fyrir lærisveina Rúnars Sigtryggssonar hjá HSG Wetzlar er þeir tóku á móti Füchse Berlin. Gestirnir léku á als oddi og unnu með 14 marka mun, 41:27. Wetzlar er þar með áfram í næstneðsta sæti deildarinnar með sama stigafjölda og Leipzig.
Norðmaðurinn Tobias Grøndahl og Daninn Mathias Gidsel voru allt í öllu hjá Füchse Berlin og skoruðu m.a. samanlagt 20 mörk.
Füchse Berlin er í öðru sæti, sex stigum á eftir Magdeburg sem er með 38 stig, auk þess að eiga leik inni á Berlínarliðið.
Staðan í þýsku 1. deildinni:



