- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

„Þakklát fyrir að fá allar þessar sendingar“

- Auglýsing -

„Það var bara gaman að þessu. Ég er þakklát fyrir að fá allar þessar sendingar og geta nýtt færin mín,“ sagði Rakel Oddný Guðmundsdóttir leikmaður Hauka og landsliðskona við handbolta.is í kvöld eftir að hún skoraði 13 mörk í 14 skotum í stórsigri Hauka á Fram, 35:27, í 17. umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik.

Hver leikur skiptir máli

„Nú erum við komnar inn í síðustu leikina í deildinnni og hvert stig skiptir máli, reyndar eins og það hefur gert í allan vetur. Við erum að keppast við að ná sem lengst og ná sem bestu sæti, það sem skiptir máli þegar kemur að úrslitakeppninni,“ sagði Rakel Oddný en með sigrinum stukku Haukar úr fimmta sæti og upp í þriðja sæti, tveimur stigum á undan Fram og stigi ofar en ÍR sem á leik til góða. Sigurinn getur reynst Haukum dýrmætur ef liðið verður jafnt Fram að stigum þegar upp verður staðið.

Verðum að fylgja þessu eftir

Rakel Oddný undirstrikaði að sigurinn í kvöld hafi ekkert að segja þegar liðin mætast aftur í undanúrslitum bikarkeppninnar eftir hálfan mánuð. „Það er ekki nóg fyrir okkur að mæta bara af krafti í þennan leik. Við verðum fylgja þessu eftir í næstu leikjum.“

Vörn vinnur leiki

Haukar voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 19:16, en gerðu út um leikinn á fyrstu 10 mínútum síðari hálfleiks. „Við vorum bara staðráðnar í að koma með kassann fram í síðari hálfleikinn og bæta vörnina. Við vissum að ef það tækist þá myndi sóknarleikurinn fylgja með. Vörn vinnur leiki,“ sagði Rakel Oddný Guðmundsdóttir leikmaður Hauka í viðtali við handbolta.is eftir sigurinn örugga í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum í kvöld.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -