- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Framtíð landsliðsþjálfara í höndum matsnefndar

- Auglýsing -

Norska handknattleikssambandið hefur hóað saman í nefnd sem á að vega og meta starf Jonas Wille landsliðsþjálfara karla síðustu fimm ár. Samningur Wille rennur út í vor. Ekki verður tekin ákvörðun um hvort honum verði boðinn nýr samningur eða ekki fyrr en nefndin hefur skilað niðurstöðum.

Á að fara yfir sviðið

Matsnefndin á að fara yfir árangur landsliðsins á síðustu mótum, hvernig skipulagi þess sé háttað, utan vallar sem innan. Einnig á nefndin að meta hvernig landsliðinu er stjórnað, hvar liðið stendur íþróttalega, hverjir möguleikar þess séu til þróunar og framfara auk þess að leggja mat á hvernig styrkleikar leikmanna eru nýttir eða vannýttir.

Nefndin mun á næstu vikum taka viðtöl við landsliðsþjálfarann, leikmenn, starfsmenn og aðra lykilaðila áður en niðurstöður verða afhentar stjórn sambandsins. Stjórn sambandsins mun síðan nota niðurstöðurnar sem grundvöll fyrir næstu skrefum er lúta að framtíð landsliðsþjálfarans.

Aldrei í undanúrslit

Síðan Wille tók við þjálfun landsliðsins hefur það aldrei náð inn í undanúrslit á stórmóti. Landsliðið hafnaði í sjötta sæti á HM 2023, níunda sæti á EM 2024, sjötta sæti á Ólympíuleikunum 2024, tíunda sæti á HM 2025 og í níunda sæti á EM 2026.

Hefur legið undir gagnrýni

Wille tók við af Christian Berge vorið 2022. Áður hafði hann verið aðstoðarmaður Berge í nokkra mánuði. Wille hefur legið undir gagnrýni nánast frá upphafi. Mátti litlu muna að honum yrði gert að taka pokann sinn eftir HM fyrir ári þegar norska landsliðinu vegnaði ekki sem best á heimavelli, einkum í upphafsleikjunum.

Wille hefur óskað eftir að niðurstaða liggi fyrir sem fyrst hvort honum verði boðinn nýr samningur eða ei.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -