FH vann þriðja sigur sinn í röð í Olísdeild karla í handknattleik í kvöld er liðið lagði Selfoss, 33:30, í Kaplakrika í upphafsleik 18. umferðar. Sigurinn var torsóttur og það var ekki fyrr en á síðustu fimm mínútunum sem FH náði að snúa baráttuglaða Selfyssinga af sér. Selfoss var þremur mörkum yfir í hálfleik, 15:12, var með eins til tveggja marka forskot allt fram undir lokamínúturnar. Sem fyrr er ekki spurt að sanngirni í íþróttum.
Með sigrinum færðist FH upp í annað sæti deildarinnar með 25 stig, stigi á eftir Val sem á leik til góða og stigi fyrir ofan Hauka sem eiga einnig leik inni.
Ekki rishátt
Fyrri hálfleikur viðureignar FH og Selfoss í Kaplakrika í kvöld var ekki rishár, ekki síst af hálfu FH-liðsins. Sóknarleikurinn var mistækur og árangurinn samkvæmt því. Varnarleikurinn var götóttur. Vissulega var Alexander Hrafnkelsson frábær í marki Selfoss og varði annað hvert skot sem á markið kom. Sum voru ekki burðug. Burt séð frá því þá tapaði FH-liðið boltanum oft í fyrri hállfeik. Þeirra markahæstur í fyrri hálfleik var Símon Michael Guðjónsson sem kom inn á völlinn fjórum sinnum í hálfleiknum til þess að taka vítaköst. Hann skoraði í þrígang.
Selfyssingar börðust eins og ljón enda hvert stig liðinu mikilvægt í botnbaráttunni. Ef ekki hefði verið fyrir góða spretti þeirra fyrrverandi samherja, Jón Þórarins Þorsteinssonar í marki FH, hefur Selfoss verið með meira en þriggja marka forskot í hálfleik, 15:12.

Eltu allan síðari hálfleikinn
FH-ingar jöfnuðu metin fljótlega í síðari hálfleik, 17:17. Selfyssingar létu hinsvegar ekki hug falla og héldu frumkvæðinu áfram sem nam einu til tveimur mörkum. Varnarleikur FH var slakur og markvarslan þar af leiðandi engin. Engu breytti þótt Daníel Freyr Andrésson leysti Jón Þórarinn af.
Alexander markvörður Selfoss náði sér heldur ekki á sama strik og í fyrri hálfleik og munaði um meira hjá Selfossliðinu.
Tíu mínútum fyrir leikslok var FH ennþá að elta gesti sína sem náðu tveggja marka forskoti með marki Hannesar Höskuldssonar úr vinstra horni, 26:24.
Jöfnuðu metin og komust yfir
Brynjar Narfi Arndal jafnaði loksins metin fyrir FH, 27:27, þegar sex mínútur voru til leiksloka.
Birgir Már Birgisson kom FH loksins yfir, 28:27, eftir hraðaupphlaup fjórum mínútum fyrir leikslok. Selfoss tapaði boltanum í kjölfarið og FH-inga nýttu sér til að ná tveggja marka forskoti, 29:27. Eftir það féll flest með FH-ingum meðan Selfyssingum gekk margt í mót, utan vallar sem innan m.a. var röng skipting rúmri mínútu fyrir leikslok dýr.
Mörk FH: Símon Michael Guðjónsson 9/6, Garðar Ingi Sindrason 6, Birgir Már Birgisson 4, Einar Örn Sindrason 3, Brynjar Narfi Arndal 2, Leonharð Þorgeir Harðarson 2, Ágúst Birgisson 2, Birkir Benediktsson 1, Ingvar Dagur Gunnarsson 1, Ómar Darri Sigurgeirsson 1, Kristófer Máni Jónasson 1.
Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 8, 28,6% – Daníel Freyr Andrésson 5, 33,3%.
Mörk Selfoss: Hannes Höskuldsson 9/3, Gunnar Kári Bragason 6, Sölvi Svavarsson 4, Tryggvi Sigurberg Traustason 3, Anton Breki Hjaltason 2, Valdimar Örn Ingvarsson 2, Jónas Karl Gunnlaugsson 2, Elvar Elí Hallgrímsson 1, Jason Dagur Þórisson 1.
Varin skot: Alexander Hrafnkelsson 21, 42,9% – Philipp Seidemann 2/2, 50%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.


