- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Þorðum ekki að vinna

- Auglýsing -

„Það fyrsta sem kemur upp í hugann strax eftir leik er svekkelsi. Engu var líkara en við þyrðum ekki að vinna,“ sagði Hannes Höskuldsson markahæsti leikmaður Selfoss við handbolta.is eftir þriggja marka tap, 33:30, Selfossliðsins fyrir FH í Olísdeild karla í handknattleik í kvöld. Selfoss var með yfirhöndina í leiknum fram á 55. mínútu þegar þeim tók að falla allur ketill í eld.

Köstuðum þessu frá okkur

„Við klúðruðum boltanum á mikilvægum tímapunkti og fengum auk þess klúðurlegar tvær mínútur á varamannabekkinn. Við hreinlega köstuðum frá okkur leiknum,“ sagði Hannes og mátti svo sannarlega vera vonsvikinn með lyktirnar.

„Við vorum með stjórn á leiknum í rúmlega 52 mínútur en síðan náðu FH-ingar áhlaupi á okkur í lokin. Þá datt botninn úr hjá okkur. Kannski vorum við orðnir þreyttir en það er engin afsökun því við áttum að klára þetta,“ sagði Hannes.

Ætla sér í úrslitakeppnina

Markmið Selfossliðsins, sem kom upp í Olísdeildina fyrir keppnistímabilið, er skýrt. Það ætlar sér í úrslitakeppnina, að sögn Hannesar. „Við þurfum tvö til fjögur stig til viðbótar til að komast í áttunda sætið. Tvö stig voru á boðstólum í kvöld en því miður náðum við þeim ekki. Það er svekkelsið,“ sagði Hannes og bætti við:

Saga okkar

„Þessi leikur er aðeins saga okkar í vetur. Við höfum verið í hörkuleikjum gegn mörgum í vetur en misst af stigunum undir lokin í nokkrum viðureignum, bæði jafnt og heima og að heiman,“ sagði Hannes Höskuldsson leikmaður Selfoss.

Selfoss mætir Þór í Sethöllinni á Selfossi í 19. umferð Olísdeildar laugardaginn 21. febrúar.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -