„Ég ætlaði mér ekki í þjálfun og hafði ekkert velt því fyrir mér þótt ég hafi aðeins verið að vinna á bak við tjöldin með liðinu og komið inn á nokkrar æfingar í vetur til þess að hjálpa leikmönnum,“ sagði Aron Pálmarsson sem kynntur var til sögunnar sem aðstoðarþjálfari karlaliðs FH á miðvikudagskvöld, mörgum að óvörum. Útsendari handbolta.is hitti Aron stuttlega að máli í Kaplakrika í gærkvöld eftir viðureign FH og Selfoss í Olísdeild karla.
Bara út tímabilið
„Í upphafi vikunnar komu Steini [Sigursteinn Arndal þjálfari] og Einar Andri [Einarsson aðstoðarþjálfari] að máli við mig og spurðu hvort ég vildi eða gæti komið inn í hópinn sem aðstoðarþjálfari. Ég hugsaði mig um í tvo daga og ákvað að slá til. Þessi ákvörðun gildir bara út tímabilið. Ég er spenntur fyrir að prófa,“ sagði Aron enn fremur um aðdraganda þess að hann kom formlega til liðs við þjálfaratreymi FH-liðsins.
Aron er orðinn aðstoðarþjálfari hjá FH
Mesta stressið
„Mesta stressið hjá mér fyrir leikinn í kvöld var hvenær og hvernig ég ætti að heilsa dómurum og starfsmönnum leiksins. Ég þekki mig ekki í þessari stöðu,“ sagði Aron léttur í bragði áður en hann bætti við:
Er í þessu af heilum hug
„Það er fyrst og fremst gaman að prófa, nálgast handboltann frá þessari hlið. Ég mæti á allar æfingar og leiki og ligg yfir upptökum af leikjum. Ég vil ekki taka að mér þetta verkefni með hálfum huga heldur hella mér í það. Ég gaf mér tvo daga í að velta ákvörðuninni fyrir mér, að hrökkva eða stökkva. Þegar ákvörðun lá fyrir var bara að hella sér í vinnuna af fullum krafti. Ég tek ekki að mér verkefni með hálfum huga, annaðhvort fer ég í þau og er „all inn“ eða ég sleppi þeim,“ sagði Aron Pálmarsson í Kaplakrika áður hann stökk inn á þjálfarafund eftir viðureignina við Selfoss í gærkvöld. Þrátt fyrir sigur FH í leiknum, 33:30, hafa Aron og Sigursteinn Arndal þjálfari haft í mörg horn að líta því ekki var leikur FH upp á það besta þrátt fyrir sigur.



