Grótta settist í efsta sæti Grill 66-deildar karla í handknattleik í kvöld eftir öruggan sigur á Fjölni í Fjölnishöllinni í Grafarvogi, 36:26. Gróttumenn hafa þar með 32 stig eftir 18 leiki. Víkingur er tveimur stigum á eftir og á leik til góða gegn Herði á morgun klukkan 16 í Virkinu, en svo nefnist skyndilega gamla góða íþróttahúsið í Safamýri.
Fjölnir – Grótta 26:36 (15:18).
Mörk Fjölnis: Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson 5, Brynjar Óli Kristjánsson 4, Kristján Ingi Kjartansson 3, Alex Máni Oddnýjarson 3, Óli Fannar Pedersen 3, Victor Máni Matthíasson 3, Viktor Berg Grétarsson 3, Ari Magnússon 1, Bjarni Freyr Ásgeirsson 1.
Varin skot: Viktor Alex Ragnarsson 7, Bergur Bjartmarsson 6.
Mörk Gróttu: Atli Steinn Arnarson 6, Bessi Teitsson 6, Sæþór Atlason 6, Gísli Örn Alfreðsson 4, Tómas Bragi Lorriaux Starrason 4, Antoine Óskar Pantano 3, Hannes Grimm 2, Þorgeir Bjarki Davíðsson 2, Gunnar Hrafn Pálsson 1, Kári Kvaran 1, Sigurður Finnbogi Sæmundsson 1.
Varin skot: Hannes Pétur Hauksson 18.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.
Hvíti riddarinn – HBH 29:23 (16:11).
Mörk Hvíta riddarans: Adam Ingi Sigurðsson 6, Alexander Sörli Hauksson 6, Andri Freyr Friðriksson 5, Leó Halldórsson 4, Brynjar Búi Davíðsson 3, Haukur Guðmundsson 3, Daníel Bæring Grétarsson 1, Jökull Ari Sveinsson 1.
Varin skot: Sigurjón Bragi Atlason 12.
Mörk HBH: Bergvin Haraldsson 9, Egill Oddgeir Stefánsson 4, Bogi Guðjónsson 3, Ólafur Már Haraldsson 2, Heimir Halldór Sigurjónsson 1, Andri Magnússon 1, Tómas Runi Gunnarsson 1, Haukur Leó Magnússon 1, Einar Bent Bjarnason 1.
Varin skot: Gabríel Ari Davíðsson 8.



