- Auglýsing -
Elín Klara Þorkelsdóttir og liðsfélagar í IK Sävehof hafa þriggja stiga forskot á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik eftir 17 umferðir með 30 stig. IK Sävehof vann Höörs HK H 65 með 11 marka mun á heimavelli í gær, 34:23, eftir að hafa verið níu mörkum yfir í hálfleik, 17:8.
Elín Klara var næstmarkahæst hjá IK Sävehof með sex mörk, tvö þeirra úr vítaköstum. Kim Molenaar var markahæst með 11 mörk og geigaði ekki á skoti.
Sem fyrr segir hefur IK Sävehof 30 stig eftir 17 leiki. Önnereds er með 27 stig og Höörs HK H 65 situr í þriðja sæti með 24 stig og hefur auk þess leikið einum leik fleira. Lena Margrét Valdimarsdóttir og samherjar í Skara HF sitja í fjórða sæti.
- Auglýsing -



