- Auglýsing -
Katla María Magnúsdóttir og liðsfélagar Holstebro Håndbold færast stöðugt nær sæti í dönsku úrvalsdeildinni á næsta keppnistímabili. Holstebro hefur átta stiga forskot í fyrsta sæti 1. deildar þegar fimm umferðir eru eftir. Liðið vann Fredericia Håndboldklub, 24:21, á útivelli í gær.
Katla María skoraði þrjú mörk, þar af eitt úr vítakasti. Holstebro hefur unnið 16 leiki af 17 í deildinni. Ajax er í öðru með 24 stig og er eina liðið sem á fræðilega möguleika á að koma í veg fyrir að Holstebro fari beint upp í úrvalsdeildina. Til þess þarf Ajax að vinna fimm síðustu leiki sína og Holstebro öllum sínum leikjum. AGF er í þriðja sæti, 10 stigum á eftir Holstebro, en stendur höllum fæti í innbyrðis leikjum.
- Auglýsing -


