Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði sín fyrstu mörk fyrir FC Porto um langa hríð í gærkvöld þegar liðið vann Vitória SC, 29:19, á heimavelli í portúgölsku 1. deildinni í handknattleik. Þorsteinn Leó tognaði á nára snemma í nóvember í Evrópuleik og tók ekki þátt í leikjum Porto fyrr en um síðustu helgi er liðið tapaði fyrir Sporting í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar. Þorsteinn Leó skoraði ekki í þeim leik.
Þorsteinn Leó skoraði fjögur mörk í sex skotum í sigurleiknum á Vitória SC í gærkvöld. António Martinez, Daymaro Salina og Pol Valera skoruðu einnig fjögur mörk hver fyrir Porto-liðið sem er í öðru sæti deildarinnar með 48 stig eftir 18 leiki, þremur stigum og einum leik á eftir Sporting. Benfica er í þriðja sæti með 46 stig.


