Með ævintýralega góðri frammistöðu í síðari hálfleik tryggði TMS Ringsted sér sæti í úrslitaleik dönsku bikarkeppninnar í handknattleik karla á morgun. TMS Ringsted lagði SönderjyskE, 35:32, í fyrri undanúrslitaleik keppninnar í dag eftir að hafa verið sex mörkum undir í hálfleik, 19:13.
Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði þrjú mörk fyrir TMS Ringsted, þar af eitt úr vítakasti. Einnig átti hann þrjár stoðsendingar. Ísak Gústafsson skoraði ekki mark en er skráður fyrir eina stoðsendingu. Ísak á afmæli í dag.
Það blés ekki byrlega fyrir Ringsted-liðum í hálfleik en þeir bitu í skjaldarrendur og léku eins þeir sem haldið hafa í síðari hálfleik, jafnt í vörn sem sókn.
Í dag skýrist hvort það verður Aalborg Håndbold eða GOG sem verður andstæðingur TMS Ringsted í úrslitaleik bikarkeppninnar í Jyske Bank Boxen í Herning á morgun. Undanúrslitaleikirnir fara fram á sama stað í dag.
Í fyrsta sinn í úrslitum
TMS Ringsted hefur aldrei leikið til úrslita í dönsku bikarkeppninni. Þar á ofan er liðið það fyrsta í 15 ár frá Sjálandi sem leikur til úrslita í bikarkeppninni í karlaflokki.



