Valur og ÍBV hafa áfram yfirburðastöðu í tveimur efstu sætum Olísdeildar kvenna í handknattleik. Bæði lið unnu nauma sigra í leikjum sínum í dag. Valur lagði ÍR í Skógarseli, 19:18, og ÍBV hafði betur eftir töluverðan barning gegn Stjörnunni, 31:29, í Vestmannaeyjum. Stjarnan var marki yfir í hálfleik, 18:17, og var um skeið með yfirhöndina í síðari hálfleik.
Birna Berg Haraldsdóttir fór á kostum með ÍBV og skoraði 10 mörk. Að sama skapi var færeyska landsliðskonan Natasja Hammer í ham hjá Stjörnunni með sjö mörk og níu sköpuð marktækifæri.
ÍBV hefur 28 stig eftir 17 leiki og er tveimur stigum á eftir Val. Stjarnan er sem fyrr í næst neðsta sæti.

Sif átti stórleik
Sif Hallgrímsdóttir átti stórleik í marki ÍR gegn Val í dag og varði m.a. 16 skot, þar af þrjú vítaköst. Það er sannarlega ekki algengt að frammistaða markvarðar andstæðings Vals skyggi á framgöngu Hafdísar Renötudóttur landsliðsmarkvarðar Vals.
Í jöfnum leik í Skógarseli tókst Val að merja sigur í leik það sem aðaláherslan var lögð á varnarleik.
Við tapið varð ÍR-liðið að gefa eftir þriðja sæti deildarinnar til Hauka sem lögðu Fram á miðvikudagskvöld.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
ÍR – Valur 18:19 (9:10).
Mörk ÍR: Sara Dögg Hjaltadóttir 9/6, Vaka Líf Kristinsdóttir 4, Matthildur Lilja Jónsdóttir 2, Sylvía Sigríður Jónsdóttir 2, Anna María Aðalsteinsdóttir 1.
Varin skot: Sif Hallgrímsdóttir 16/3, 45,7%.
Mörk Vals: Lovísa Thompson 6, Arna Karitas Eiríksdóttir 4, Þórey Anna Ásgeirsdóttir 3/1, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 2, Hildur Björnsdóttir 1, Ásdís Þóra Ágústsdóttir 1, Lilja Ágústsdóttir 1, Mariam Eradze 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 13/1, 43,3% – Elísabet Millý Elíasardóttir 0.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
ÍBV – Stjarnan 31:29 (17:18).
Mörk ÍBV: Birna Berg Haraldsdóttir 10, Ásta Björt Júlíusdóttir 6/4, Sandra Erlingsdóttir 5, Birna María Unnarsdóttir 3, Ásdís Halla Hjarðar 3, Amelía Dís Einarsdóttir 2, Birna Dís Sigurðardóttir 1, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 1.
Varin skot: Amalia Frøland 6, 22,2% – Ólöf Maren Bjarnadóttir 3, 30%.
Mörk Stjörnunnar: Natasja Hammer 7, Inga Maria Roysdottir 6, Eva Björk Davíðsdóttir 6/3, Hanna Guðrún Hauksdóttir 4, Vigdís Arna Hjartardóttir 3, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 2, Rakel Guðjónsdóttir 1.
Varin skot: Margrét Einarsdóttir 10/1, 26,3% – Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 2, 40%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.


