- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

KA/Þór tryggði sér áframhaldandi veru á meðal þeirra bestu

- Auglýsing -

KA/Þór gulltryggði áframhaldandi veru sína í Olísdeild kvenna á næstu leiktíð með öruggum sigri á Selfossi, 26:22, í Sethöllinni á Selfossi í dag. KA/Þór hefur nú 15 stig eftir, er 10 stigum á undan Stjörnunni sem er í næst neðsta sæti þegar fjórar umferðir eru eftir. Selfossliðið er aftur á móti í neðsta sæti og verður áfram í kapphlaupi við Stjörnuna um að forðast beint fall úr deildinni. Stjarnan er stigi á undan.


Leikurinn í Sethöllinni var jafn í fyrri hálfleik og skoraði hvort lið 13 mörk þegar upp var staðið. KA/Þórsliðið tók hins vegar völdin þegar kom fram í síðari hálfleik. Varnarleikur liðsins var góður auk þess sem Bernadett Leiner var vel með á nótunum. Selfossliðið lenti á vegg og skoraði aðeins fjögur mörk á fyrstu 25 mínútum síðari hálfleiks. Slíkt kunni ekki góðri lukku að stýra. Tækifærið lét KA/Þórsliðið sér ekki úr greipum ganga og vann sannfærandi sigur.

Leikir Selfoss sem eftir eru:
18. umferð: ÍBV - Selfoss.
19. umferð: Selfoss - Stjarnan.
20. umferð: Selfoss - Haukar.
21. umferð: ÍR - Selfoss.
Leikir Stjörnunnar sem eftir eru:
18. umferð: Stjarnan - Valur.
19. umferð: Selfoss - Stjarnan.
20. umferð: Stjarnan - Fram.
21. umferð: Haukar - Stjarnan.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.


Mörk Selfoss: Hulda Dís Þrastardóttir 8/5, Marte Syverud 3, Arna Kristín Einarsdóttir 3, Eva Lind Tyrfingsdóttir 3, Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir 2, Hulda Hrönn Bragadóttir 2, Adela Eyrún Jóhannsdóttir 1.
Varin skot: Sara Xiao Reykdal 12/1, 31,6%.

Mörk KA/Þórs: Tinna Valgerður Gísladóttir 6/3, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 5, Trude Blestrud Hakonsen 5, Anna Þyrí Halldórsdóttir 4, Susanne Denise Pettersen 3, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 2, Elsa Björg Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Bernadett Leiner 18, 48,6%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -