- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ólafur Brim var allt í öllu í öðrum sigurleiknum í röð

- Auglýsing -

Ólafur Brim Stefánsson var allt í öllu hjá Junior Fasano þegar liðið lagði Macagi Cingola, 32:28, á útivelli í 17. umferð Seria A-gold, efstu deild ítalska handknattleiksins í gær. Ólafur Brim stóð vaktina í miðri vörn liðsins og var auk þess aðsópsmestur sóknarmanna með sjö mörk. Þetta var annar leikur Ólafs Brim með Junior Fasano eftir að hann gekk til liðs við félagið í síðasta mánuði.


Sigurinn styrkti stöðu Junior Fasano í keppninni um sæti í fjögurra liða úrslitakeppni deildarinnar. Nú mun fimm stigum á Junior Fasano í fjórða sæti og liði Trieste sem situr í fimmta sæti. Macagi Cingola situr í sjöunda sæti, sex stigum á eftir Ólafi Brim og hans nýju samherjum.

Cassano er í efsta sæti með 30 stig eftir 17 leiki. Sassari hefur 26 stig og Albatro 23 stig áður en kemur að Junior Fasano sem unnið hefur tvo leiki í röð.


Hér fyrir neðan er upptaka frá leik Macagi Cingola og Junior Fasano í gær.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -