Orri Freyr Þorkelsson skoraði fimm mörk þegar portúgalska meistaraliðið Sporting Lissabon vann Póvoa, 42:21, á heimavelli í efstu deild karla í handknattleik í Portúgal. Yfirburðir Sporting voru miklir í leiknum en liðið hafði 12 marka forskot að loknum fyrri hálfleik, 23:11.
Þetta var átjándi sigur Sporting í jafn mörgum leikjum og hefur liðið þar af leiðandi yfirburðastöðu í deildinni. Porto hefur til að mynda tapað tveimur leikjum og Benfica þremur viðureignum.
Francisco Costa lék ekki með Sporting í viðureigninni í gær. Bróðir hans, Martím, skoraði sjö mörk en Carlos Dominguez var markahæstur með átta mörk.
Átta mörk hjá Stiven
Stiven Tobar Valencia skoraði átta mörk í öruggum sigri Benfica á Marítimo Madeira, 40:30. Liðin mættust snemma dags í gær í Lissabon. Benfica er í öðru sæti deildarinnar en hefur leikið einum leik fleira en Porto sem er næst á eftir í þriðja sæti.



