Stórleikur Viggós Kristjánssonar dugði HC Erlangen ekki í dag þegar liðið tapaði með sex marka mun í heimsókn til Lemgo í Lipperlandhalle, 27:21. Seltirningurinn skoraði 11 mörk, þar af átta úr vítaköstum, og var markahæsti leikmaður Erlangen sem situr í 12. sæti þýsku 1. deildarinnar með 14 stig eftir 21 leik.
Andri Már skoraði fjögur mörk
Andri Már Rúnarsson skoraði fjögur mörk. Væntanlega hafa stoðsendingar verið vantaldar í leiknum því hvorki Andri Már né Viggó eru skráðir fyrir einni einustu og reyndar eru þær harla fáar skráðar á liðið.
Markvörslu var afar ábótavant hjá HC Erlangen í leiknum á sama tíma og austurríski landsliðsmarkvörðurinn Constantin Möstl fór hamförum í marki Lemgo með 16 skot varin, 47% hlutfallsmarkvörslu.
Niels Gerardus Versteijnen skoraði sjö mörk fyrir Lemgo sem stökk a.m.k. um stundarsakir upp í þriðja sæti deildarinnar með 32 stig að lokinni 21 viðureign.
Einar Þorsteinn Ólafsson og liðsfélagar í HSV Hamburg töpuðu á heimavelli fyrir Flensburg, 38:35. Nicolaj Jørgensen skoraði átta mörk fyrir HSV. Landi hans Simon Pytlick var markahæstur hjá Flensburg með níu mörk en reyndar röðuðu danskir landsliðsmenn sér í hóp þriggja markahæstu Flensborgarliðinu.
Füchse Berlin lagði Stuttgart, 37:32.


