Guðmundur Bragi Ástþórsson og Ísak Gústafsson fara heim með silfurverðlaun frá bikarhelgi danska handknattleiksins eftir að lið þeirra, TMS Ringsted, tapaði fyrir Aalborg Håndbold, 34:24, í úrslitaleik í Jyske Bank Boxen í Herning í dag.
Guðmundur Bragi skoraði eitt mark og átti tvær stoðsendingar. Ísak náði sér ekki fullkomlega á strik. Hann skoraði ekki mark í sex tilraunum en átti þrjár stoðsendingar.
Þrautreynt lið Aalborg Håndbold gerði út um leikinn í fyrri hálfleik. Þegar síðari hálfleikur hófst var liðið með 11 marka forskot, 21:10.
Nikas Landin átti stórleik í marki Aalborg Håndbold. Hann varði 13 skot, 56,5%, þrátt fyrir að vera aðeins í markinu rétt rúmlega hálfan leikinn.
Danski landsliðsmaðurinn Thomas Arnoldsen var markahæstur hjá Aalborg með sjö mörk. Oliver Wosniak skoraði átta mörk fyrir TMS Ringsed.
Í úrslitum í fyrsta sinn
Þetta var í fyrsta sinn sem TMS Ringsted leikur til úrslita í bikarkeppninni. Liðið var um leið það fyrsta frá Sjálandi til þess að komast í úrslit síðan AG Köbenhavn vann bikarkeppnina fyrir 15 árum.
Aalborg Håndbold vann bikarinn annað árið í röð og í fjórða skipti frá upphafi.
Magnaður síðari hálfleikur tryggði Íslendingum úrslitaleik á morgun



