Sá fáheyrði atburður átti sér stað í kvöld að þýska handknattleiksliðið SC Magdeburg tapaði viðureign í þýsku 1. deildinni í handknattleik er það sótti THW Kiel heim í 21. umferð. Lokatölur í troðfullri Wunderino-Arena Kiel í Kiel voru, 31:29, fyrir heimamenn sem voru tveimur mörkum undir í hálfleik, 12:10.
20 leikir í röð án taps
Þetta er fyrsta tap SC Magdeburg í deildinni á keppnistímabilinu. Fyrir viðureignina hafði liðið leikið 20 leiki, unnið 18 og gert tvö jafntefli.
Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon skoruðu fimm mörk hvor fyrir Magdeburg. Þeir gáfu fjórar stoðsendingar hvor. Tim Hornke var markahæstur með sjö mörk.
Hornamaðurinn Lukas Zerbe var frábær og skoraði níu mörk fyrir Kiel. Lukas Laube var næstur með sex mörk.
Munur í markvörslu
Kiel komst yfir þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik og lét yfirhöndina aldrei af hendi. Miklu munaði að Gonzalo Perez de Vargas varði vel í marki Kiel meðan markvarslan var lítil hjá Magdeburg í síðari hálfleik eftir að Sergey Hernández markvörður hafði fundið sig vel í þeim fyrri.
Andreas Wolff markvörður Kiel og þýska landsliðsins meiddist snemma leiks og þá var ekki amalegt fyrir þjálfari Kiel, Filip Jicha, að geta sent de Vargas inn á leikvöllinn.
Ljóst er að Elvars Arnar Jónssonar er sárt saknað í varnarleik SC Magdeburg ekkert síður en í varnarleik íslenska landsliðsins.
Staðan í þýsku 1. deildinni:


