ÍR-ingurinn Sara Dögg Hjaltadóttir er markahæst í Olísdeild kvenna, þegar 17 umferðir eru að baki. Sara Dögg hefur verið áköfust við markaskorun í deildinni frá fyrstu umferð. Alls hefur hún skorað 163 mörk í 17 leikjum, eða 9,6 mörk að jafnaði í leik.
Sandra Erlingsdóttir, leikmaður ÍBV og fyrirliði landsliðsins, er næst á eftir með 132 mörk, 7,8 mörk að meðaltali í leik. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir hjá Haukum er í þriðja sæti listans með 122 mörk, 7,2 mörk að jafnaði í hverri viðureign.
Án vítakasta
Birna Berg Haraldsdóttir hjá ÍBV og færeyska landsliðskonan hjá Stjörnunni, Natasja Hammer, hafa skorað flest mörk leikmanna Olísdeildar kvenna þegar litið er fram hjá mörkum úr vítaköstum.
Hér fyrir neðan eru þær sem hafa skorað 50 mörk eða fleiri:
Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR, 163/67.
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV, 132/40.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Haukum, 122/35.
Birna Berg Haraldsdóttir, ÍBV, 115/0.
Natasja Hammer, Stjörnunni, 111/0.
Lovísa Thompson, Val, 90/0.
Mia Kristin Syverud, Selfossi, 89/24.
Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukum, 85/2.
Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Fram, 85/0.
Tinna Valgerður Gísladóttir, KA/Þór, 83/54.
Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Val, 82/38.
Eva Björk Davíðsdóttir, Stjörnunni, 77/25.
Susanne Denise Pettersen, KA/Þór, 77/2.
Hulda Dís Þrastardóttir, Selfossi, 76/49.
Vaka Líf Kristinsdóttir, ÍR, 75/3.
Harpa María Friðgeirsdóttir, Fram, 71/0.
Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR, 70/1.
Embla Steindórsdóttir, Haukum, 68/10.
Hulda Dagsdóttir, Fram, 67/31.
Alexandra Ósk Viktorsdóttir, ÍBV, 66/0.
Trude Blestrud Hakonsen, KA/Þór, 65/0.
Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir, Val, 64/0.
Ásdís Guðmundsdóttir, Fram, 57/11.
Inga Maria Roysdottir, Stjörnunni, 54/0.
Amelía Dís Einarsdóttir, ÍBV, 51/0.
Valgerður Arnalds, Fram, 50/0.
Heimild: HBStatz.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.



