- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Markverðir landsliðanna eru leikmenn ársins

- Auglýsing -

Landsliðsmarkverðir Þýskalands, Katharina Filter og Andreas Wolff, eru handknattleiksfólk ársins 2025 hjá lesendum vikuritsins sigilda, Handballwoche. Vikuritið leitaði að vanda lesenda sinna vegna kjörsins. Niðurstöður voru kynntar á Facebook-síðu tímaritsins í dag en verða lagðar ítarlega á borð lesenda þegar blaðið kemur út í fyrramálið.


Filter lék stórt hlutverk hjá þýska landsliðinu sem hafnaði í öðru sæti á heimsmeistaramótinu sem lauk í desember. Það er skýrt í niðurstöðu kjörsins en þýsku landsliðskonurnar Antje Döll og Xenia Smits höfnuðu í öðru og þriðja sæti.

Andreas Wolff, markvörður þýska landsliðsins. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Wolff er afar vinsæll í Þýskalandi. Næstur á eftir honum í kjöri lesenda Handballwoche var þýski landsliðsmaðurinn Julian Köster. Köster var ekki hálfdrættingur í atkvæðafjölda Wolff.

Danski handknattleiksmaðurinn Mathias Gidsel varð að gera sér þriðja sætið á góðu, skammt á eftir Köster.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -