Eva Hrund Harðardóttir tekur við sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víkingi í vor þegar Sebastian Popovic Alexandersson þjálfari lætur af störfum eftir tveggja ára starf með liðið. Undir stjórn Sebastians hefur liðið tekið framförum og skilar hann því góðu búi til næsta þjálfara. Víkingur er um þessar mundir í 3. sæti Grill 66-deildar.
Langur og farsæll ferill
Eva Hrund á að baki langan og farsælan feril, segir í tilkynningu Víkings. Hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með Fram haustið 2002 og lauk leikmannaferlinum með HK vorið 2021. Hún hefur jafnframt víðtæka reynslu af þjálfun yngri flokka og hefur starfað sem þjálfari frá árinu 2005. Undanfarin ár hefur hún meðal annars þjálfað 3. flokk kvenna og verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá HK tímabilið 2023–2025. Síðastliðið haust tók hún við 4. flokki kvenna hjá Víkingi og hefur samhliða tekið þátt í þjálfun 3. flokks kvenna. Í 4. flokki kvenna hefur Eva byggt upp öfluga liðsheild og myndað sterkan hóp þar sem metnaður og áræðni eru í fyrirrúmi.
Hlakkar til starfsins
„Ég er spennt fyrir komandi tímum og finn fyrir góðum meðbyr. Það er margt jákvætt að gerast hjá félaginu og ég er viss um að við sem störfum í kringum liðið getum í sameiningu eflt og styrkt handboltakonur og í leiðinni lyft kvennastarfinu upp. Það er augljóst að síðastliðin ár hefur gott starf verið unnið hjá Handknattleiksdeild Víkings. Ég hlakka til að byggja ofan á þann grunn sem hefur verið lagður og lít björtum augum til framtíðar,” er haft eftir Evu Hrund í tilkynningu Víkings.


